Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 02. ágúst 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Harry Kewell ráðinn þjálfari Oldham (Staðfest)
Harry Kewell.
Harry Kewell.
Mynd: Getty Images
Harry Kewell, fyrrum leikmaður Liverpool og Leeds United, hefur verið ráðinn þjálfari Oldham Athletic.

Kewell skrifar undir eins árs samning með möguleika á framlengingu um eitt ár.

Oldham er í ensku C-deildinni og hafnaði í 19. sæti á nýafstöðnu tímabili. Deildartímabilið var ekki alveg klárað vegna kórónuveirufaraldursins.

„Ég er spenntur fyrir þessu verkefni. Félagið þarf stöðugleika og ef við náum því, þá getum við byrjað að vaxa," sagði Kewell eftir að tilkynnt var um ráðninguna.

Kewell var síðast þjálfari Notts County árið 2018 þar sem hann var rekinn eftir aðeins tíu vikur í starfi. Hann er einnig fyrrum þjálfari Crawley.
Athugasemdir
banner
banner
banner