Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 02. ágúst 2021 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
James fékk sér húðflúr tileinkað Meistaradeildartitlinum
Mynd: Getty Images
Reece James leikmaður Chelsea fékk sér húðflúr tileinkað sigri félagsins í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð.

Það náðist mynd af því á æfingu Chelsea en þetta er mynd af bikarnum og dagsetning úrslitaleiksins. Efst stendur "Dream, Believe, Achieve" eða "Dreymdu, trúðu, afrekaðu".

Það styttist óðum í að tímabilið hefjist en Chelsea spilar síðasta æfingaleikinn sinn gegn Tottenham á miðvikudaginn.

Liðið mætir síðan Villarreal í Ofurbikar Evrópu á miðvikudaginn eftir viku áður en liðið spilar sinn fyrsta leik í deildinni helgina eftir gegn Crystal Palace á heimavelli.


Athugasemdir
banner
banner
banner