Fotbolti.net
02.08.21 - 06:00
Victor Pálsson

Saka sagður hafa sannfært Arteta

Saka sagður hafa sannfært Arteta
Canon

Mynd: Arsenal

Samkvæmt the Athletic þá spilaði Bukayo Saka stórt hlutverk í að sannfæra Arsenal um að kaupa varnarmanninn Ben White.
Saka og White voru saman með enska landsliðinu í sumar er liðið komst alla leið í úrslit Evrópumeistaramótsins.

Athletic segir að Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hafi spurt Saka út í White og hafi hann fengið mjög góð viðbrögð.

Saka var mjög hrifinn af því sem hann sá af landa sínum og hvatti Arteta til að fá hann í raðir Arsenal.

White gekk svo í raðir Arsenal á dögunum en félagið borgaði Brighton 50 milljónir punda fyrir hans þjónustu.

White talaði einnig vel um Saka í viðtali við heimasíðu Arsenal en þeir kynntust á mótinu í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.