02.09.13 - 21:27
Hafliði Breiðfjörð
Andrea Dossena til Sunderland (Staðfest)

Dossena er mættur í Sunderland búninginn og flaggaði treflinum í kvöld.

Mynd: Vefur Sunderland

Vinstri bakvörðurinn ítalski Andrea Dossena er genginn til liðs við Sunderland frá Napoli á Ítalíu og gerði eins árs samning við enska félagið í kvöld.
Dossena sem lék áður með Liverpool er annar leikmaðurinn sem Sunderland fær í kvöld því félagið fékk Fabio Borini landa hans á láni frá Liverpool í kvöld.
Dossena er 31 árs gamall. Hann spilaði 24 leiki með Napoli á síðustu leiktíð þegar liðið endaði í öðru sæti ítölsku deildarinnar.
Hann kom til Liverpool frá Udinese í júlí árið 2008 og spilaði 31 leiki fyrir þá rauðu á 18 mánuðum á Anfield. Þaðan fór hann svo til Napoli árið 2010 og spilaði 93 leiki í öllum keppnum auk þess að vera á tímabili á láni hjá Palermo. Dossena á að baki 10 landsleiki fyrir Ítalíu.

Heimild: Vefur Sunderland