02.09.13 - 20:03
Daníel Freyr Jónsson
Assou-Ekotto lánaður til QPR (Staðfest)

Benoit Assou-Ekotto.

Mynd: Twitter

Benoit Assou-Ekotto.

Mynd: Twitter
Varnarmaðurinn Benoit Assou-Ekotto hefur verið lánaður frá Tottenham til QPR. Hann mun leika með liðinu út leiktíðina.
Ljóst var að tækifæri hans yrðu af afar skornum skammti á White Hart Lane í vetur eftir komu rúmenska varnarmannsins Vlad Ciriches fyrir skömmu.
Miðjumaðurinn Tom Carroll fer af öllum líkindum sömu leið síðar í kvöld, en Assou-Ekotto staðfesti vistarskipti sín við breska fjölmiðla fyrir skömmu.
Miðjumaðurinn Tom Carroll fer af öllum líkindum sömu leið síðar í kvöld, en Assou-Ekotto staðfesti vistarskipti sín við breska fjölmiðla fyrir skömmu.
