02.09.13 - 21:27
Daníel Freyr Jónsson
Mesut Özil til Arsenal á metfé (Staðfest)

Mesut Özil er genginn í raðir Arsenal.

Mynd: Getty Images

Mesut Özil er genginn í raðir Arsenal.

Mynd: Getty Images
Mesut Özil er genginn í raðir Arsenal frá Real Madrid. Hann er þar með orðinn dýrasti leikmaður í sögu enska félagsins.
Þessi frábæri leikmaður skrifar undir fimm ára samning hjá Arsenal, sem greiðir fyrir hann 42,5 milljónir punda samkvæmt heimildum.
Özil er 24 ára gamall þýskur landsliðsmaður og lék hann 159 leiki með Real Madrid á þremur árum. Áður var hann til mála hjá Werder Bremen í heimalandinu.
Kaupin hafa legið í loftinu í allan dag, en þar sem um svo stór félagaskipti er að ræða drógst það mjög á langinn að ganga frá öllum smáatriðum.
Arsenal staðfestir í yfirlýsingu að Özil sé dýrasti leikmaður í sögu félagsins þó að upphæðin komi þar hvergi fram. En sem fyrr segir telja breskir fjölmiðlar að hún nemi 42,5 milljónum punda.