Fotbolti.net
02.09.13 - 17:50
Daníel Freyr Jónsson

Crystal Palace kaupir Barry Bannan frá Villa (Staðfest)

Barry Bannan.

Barry Bannan.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarliðið Crystal Palace hefur gengið frá kaupum á skoska landsliðsmanninum Barry Bannan frá Aston Villa.
Þessi 24 ára gamli miðjumaður skrifaði undir þriggja ára samning hjá nýliðunum.

Bannan gekk í raðir Villa frá Celtic árið 2004, en hann hefur undanfarin ár verið viðloðinn leikmannahóp Villa og lék alls 61 úrvalsdeildarleik með félaginu.

Þá hefur hann spilað 12 leiki með skoska landsliðinu frá því hann lék sinn fyrsta leik fyrir þremur árum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.