02.09.13 - 09:01
Magnús Már Einarsson
Kaka til AC Milan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
AC Milan hefur fengið Brasilíumanninn Kaka aftur í sínar raðir frá Real Madrid.
Hinn þrítugi Kaka hefur skrifað undir tveggja ára samning við AC Milan en ekki hefur verið greint frá því hvort félagið hafi borgað kaupverð fyrir hann eða ekki.

Kaka varð um stutt skeið dýrasti leikmaður heims eftir að AC Milan seldi hann til Spánar árið 2009.
Brasilíski landsliðsmaðurinn stóð hins vegar aldrei undir væntingum hjá Real Madrid.
Kaka er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum AC Milan en hann var frábær þegar hann lék með liðinu frá 2003-2009.