Fotbolti.net
02.09.13 - 22:14
Daníel Freyr Jónsson

Marouane Fellaini til Manchester United (Staðfest)

Marouane Fellaini.

Marouane Fellaini.

Canon

Mynd: Getty Images

Breskir fjölmiðlar greina frá því að Belginn Marouane Fellaini hafi gengið í raðir Englandsmeistara Manchester United í kvöld.

United mun hafa greitt 27,5 milljónir punda fyrir miðjumanninn, sem fylgir þar með David Moyes til United.
Fellaini hefur verið orðaður við Manchester United síðan David Moyes tók við liðinu og nú er búið að ganga frá félagaskiptunum.

Moyes hefur verið í leit að miðjumanni í sumar og hann endaði á að ganga frá kaupum á Fellaini.

Fellaini er 25 ára gamall en hann varð dýrasti leikmaður Everton frá upphafi þegar hann kom til félagsins á 15 milljónir punda árið 2008.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.