Fotbolti.net
02.09.13 - 18:00
Daníel Freyr Jónsson

Peter Odemwingie til Cardiff City (Staðfest)

Peter Odemwingie.

Peter Odemwingie.

Canon

Mynd: Getty Images

Peter Odemwingie hefur loksins losnað frá WBA eftir að Cardiff City losaði hann úr prísundinni í dag.

Nígeríski framherjinn skrifaði undir þriggja ára samning hjá welska félaginu og staðfesti umboðsmaður hans það við Sky Sports nú rétt í þessu.
Odemwingie hefur verið í kuldanum hjá WBA í hálft ár, eða allt frá því hann fór í viðræður við QPR í janúar síðatsliðinum án þess að hafa leyfi frá WBA.

Talið er að nýliðar Cardiff hafi greitt 2,5 milljónir punda fyrir Odemwingie og hefur félagið nú eytt yfir 30 milljónum punda í nýja leikmenn í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.