Fotbolti.net
02.09.13 - 10:06
Daníel Freyr Jónsson

Victor Moses leikur með Liverpool út leiktíðina (Staðfest)

Victor Moses.

Victor Moses.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur gengið frá lánssamningi við útherjann Victor Moses. Hann kemur frá Chelsea og mun leika með liðinu út leiktíðina.
Moses kostaði Chelsea 9 milljónir punda fyrir ári síðan. Hann kom við sögu í 23 leikjum í úrvalsdeildinni og skoraði eitt mark á síðustu leiktíð, en áður hafði hann skorað 8 mörk í 74 leikjum með Wigan.

Ljóst var að tækifæri Englendingsins hjá Chelsea yrðu af afar skornum skammti í vetur eftir komu þeirra Willian og Andre Schurrle í sumar og kemur hann nú til með að auka breiddina hjá Liverpool.

Moses er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Liverpool, en fyrr í morgun var tilkynnt um kaup á varnarmönnunum Tiago Illori og Mamadou Sakho.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.