Fotbolti.net
02.09.17 - 17:14
Kristófer Jónsson

Viðar Jóns: Þarf aðeins meira kraftaverk í ár

Auglýsing
Viðar Jóns: Þarf aðeins meira kraftaverk í ár
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viðar Jónsson var að vonum súr eftir 2-0 tap gegn Þrótti í dag.
„Fyrstu viðbrögð er að við erum komnir í skelfilega stöðu. Það verður erfitt að halda stöðu sinni í deildinni. En varðandi leikinn sjálfan fannst mér við vera þokkalega góðir í þessum leik.”

Þróttur komst yfir í fyrri hálfleik eftir umdeilda vítaspyrnu. Viðar var ekki ánægður með Einar Inga dómara leiksins.

„Ég held að ég hafi aldrei kvartað yfir dómara í sumar en hann svoleiðis gefur þeim víti í upphafi leiks sem að mér fannst þeir ekki þurfa í þeirri stöðu sem þeir eru í og það fannst mér eiginlega eyðileggja leikinn. Þeir eru eitthvað faðmast þarna inní teignum en ef að það er verið að dæma á svona í öllum leikjum er verið að dæma tíu víti í hverjum leik.”

Eftir vítaspyrnuna virtust Leiknismenn aðeins slökkva á sér og komust aldrei almennilega í takt við leikinn.

„Í þeirri stöðu sem við erum þá er það bara þannig að ef að illa gengur þá fer það í hausinn á manni en við ræddum það í hálfleik að halda bara áfram. Síðan kemur þetta annað mark sem að er svona killer mark. En þrátt fyrir það þá sýndu þeir alveg karakter og við hefðum alveg getað skorað hérna í lokinn. En eins og oft áður þá gengur bara illa að skora.”

Staða Leiknis F. er ansi svört núna þegar þrjár umferðir eru eftir. Þeir eru níu stigum á eftir ÍR og ljóst er að þeir þurfa á kraftaverki að halda til að halda sæti sínu í deildinni.

„Við klárum þetta mót bara með bros á vör og höfum gaman af þessu. Í fyrra þurfti kraftaverk og það tókst en ég hugsa að það þurfi eitthvað meira kraftaverk í ár. En við höldum bara áfram á meðan það eru tölfræðilegir möguleikar. Við erum ekki fallnir.” sagði Viðar að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.