Fotbolti.net
02.09.19 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Hefur aldrei séð leikmann taka jafnmikla launalækkun

Hefur aldrei séð leikmann taka jafnmikla launalækkun
Canon

Mynd: Getty Images

Monchi, yfirmaður íþróttamála hjá Sevilla, er í skýjunum með kaup félagsins á framherjanum Javier Hernandez.

Chicharito kom til Sevilla frá West Ham á 7,5 milljónir punda í dag en hann tók á sig talsverða launalækkun til að ná félagaskiptunum í gegn.
„Hann er reyndur framherji sem fyllir þær kröfur sem þjálfarinn gerir," sagði Monchi.

„Ég hef lengi viljað fá hann og ég verð að greina frá því að á 20 árum mínum sem yfirmaður íþróttamála þá hef ég aldrei séð fótboltamann lækka launin sín svona mikið til að skrifa undir hjá Sevilla."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.