Fotbolti.net
02.09.20 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

ÍR fær unglingalandsliðsmann frá Stjörnunni (Staðfest)

ÍR er í tíunda sæti 2. deildar karla.

ÍR er í tíunda sæti 2. deildar karla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR hefur fengið hinn 17 ára gamla Hrafn Hallgrímsson frá Stjörnunni í Garðabæ.
Hrafn er varnarmaður sem var áður fyrr á mála hjá Lyn í Noregi.

Hann þykir efnilegur og á hann að baki fjóra landsleiki fyrir U15 landsliðið og fimm landsleiki fyrir U16 landsliðið.

ÍR er þessa stundina í tíunda sæti 2. deildar karla með tíu stig eftir 12 leiki. Hrafn er ekki með liðinu í kvöld þegar ÍR-inga fá Víði í heimsókn í Breiðholtinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.