02.09.20 - 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Mónakó fær Volland frá Leverkusen (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franska félagið AS Mónakó er búið að staðfesta kaupin á þýska framherjanum Kevin Volland sem kemur eftir fjögurra ára dvöl hjá Bayer Leverkusen.
Volland er 28 ára gamall og hefur spilað 10 A-landsleiki fyrir Þýskaland. Hann hefur gert 44 mörk í 115 deildarleikjum með Leverkusen og er kaupverðið talið nema á milli 15 og 20 milljónum evra.
Volland er fjórði leikmaðurinn sem Mónakó fær til sín í sumar. Anthony Musaba, Axel Disasi og Caio Henrique eru allir búnir að skrifa undir hjá félaginu. Í heildina kostuðu þessir leikmenn félagið rétt tæpar 40 milljónir evra.
Volland er fyrsti leikmaðurinn sem Leverkusen selur í sumar en Kai Havertz er á leið til Chelsea fyrir eitthvað í kringum 75 milljónir evra.
Á síðustu leiktíð gerði Volland 12 mörk í 40 leikjum í öllum keppnum.

👟⚽💨𝙆𝙚𝙫𝙞𝙣 𝙑𝙤𝙡𝙡𝙖𝙣𝙙 🇩🇪 pic.twitter.com/WlfQveOHVN
— AS Monaco 🇲🇨 (@AS_Monaco) September 2, 2020