02.09.20 - 17:44
Ívan Guðjón Baldursson
Scott Parker framlengir við Fulham (Staðfest)

Parker byrjaði stjóraferilinn gífurlega vel og kom Fulham aftur upp í deild þeirra bestu.

Mynd: Getty Images

Scott Parker er búinn að framlengja samning sinn við Fulham eftir að hafa komið félaginu aftur upp í ensku úrvalsdeildina.
Parker er nú samningsbundinn Fulham til 2023 en þessi fyrrum landsliðsmaður Englands tók við félaginu í febrúar í fyrra án þess að takast að bjarga því frá falli úr ensku úrvalsdeildinni. Það tók hann þó aðeins eitt tímabil að koma liðinu aftur upp.
Parker verður fertugur í október og er gríðarlega leikreyndur í enska boltanum. Hann lagði skóna á hilluna 2017 eftir fjögur ár hjá Fulham.
Það verður áhugavert að fylgjast með Fulham í deild þeirra bestu. Félagið er búið að næla sér í Harrison Reed, Mario Lemina, Antonee Robinson og Anthony Knockaert fyrir leiktíðina.
Parker hóf leikmannaferilinn hjá Charlton en spilaði einnig fyrir Chelsea, Newcastle, West Ham og Tottenham. Þá spilaði hann 18 leiki fyrir A-landslið Englands.