02.09.20 - 18:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Shane Duffy til Celtic (Staðfest)

Duffy fagnar marki með Brighton.

Mynd: Getty Images

Duffy fagnar marki með Brighton.

Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Shane Duffy er farinn til Skotlandsmeistara Celtic á láni út leiktíðina.
Duffy kemur á láni frá enska úrvalsdeildarfélaginu Brighton. Hann hefur spilað 130 leiki á fjórum árum á suðurströndinni.
Talið er að Celtic borgi 2 milljónir punda fyrir lánið sem og stóran hluta af launum hans. Sagt er að Duffy fái um 45 þúsund pund í vikulaun.
Ben White sneri aftur til Brighton frá Leeds í sumar og líklega sá Duffy ekki fyrir sér að fá mikið af byrjunarliðstækifærum á tímabilinu.
West Brom og West Ham voru einnig sögð áhugasöm um Duffy, en hann mun leika með Celtic á tímabilinu.