Byrjunarlið Breiðabliks í Rúmeníu - Bryndís Arna byrjar
Breiðablik með sjö marka forystu

Bryndís Arna Níelsdóttir er í fyrsta sinn í sumar í byrjunarliði Breiðabliks

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bryndís Arna Níelsdóttir er í fyrsta sinn í sumar í byrjunarliði Breiðabliks

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik heimsækir Csíkszereda frá Rúmeníu í seinni leik liðanna í 1. umferð Evrópubikarsins. Byrjunarliðin hafa verið opinberuð og þau má sjá hér fyrir neðan.
Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, gerir fjórar breytingar frá fyrri leik liðanna. Bryndís Arna Níelsdóttir byrjar sinn fyrsta leik fyrir Breiðablik í sumar, þá koma Olga Ingibjörg Einarsdóttir, Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir og Þórdís Elva Ágústsdóttir einnig inn í byrjunarliðið. Elísa Viðarsdóttir, Agla María Albertsdóttir, Edith Kristín Kristjánsdóttir og Líf Joostdóttir van Bemmel taka sæti á bekknum.
Blikar eru í afar góðri stöðu eftir 8-1 stórsigur í fyrri leiknum í Kópavogi og standa því vel að vígi í baráttunni um sæti í næstu umferð. Leikurinn hefst klukkan 16:00.
Byrjunarlið Csikszereda
- 90. Bettina Böröcz (m)
- 9. Anita Antal
- 14. Aranka Orban
- 15. Anabelle Nombot
- 17. Csilla Balasz
- 25. Pinja Xi Mei Eklund
- 26. Tereza Bednárová
- 33. Noemi Vincze
- 35. Leila Szolomájer
- 77. Jehona Shala
- 94. Andrea Herczeg
Byrjunarlið Breiðablik
- 1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
- 4. Elín Helena Karlsdóttir
- 5. Olga Ingibjörg Einarsdóttir
- 8. Katelyn Duong
- 10. Bryndís Arna Níelsdóttir
- 11. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
- 14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
- 16. Þórdís Elva Ágústsdóttir
- 17. Karitas Tómasdóttir
- 18. Kristín Dís Árnadóttir
- 29. Sunna Rún Sigurðardóttir
