Fotbolti.net
02.09.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Everton hissa á Balogun

Everton hissa á Balogun
Canon

Mynd: EPA

Folarin Balogun var nálægt því að ganga í raðir Everton frá Mónakó í gær. Á endanum hætti bandaríski framherjinn við að skrifa undir hjá Everton og verður því áfram hjá Mónakó.

Sky Sports fer yfir gærdaginn hjá Balogun og segir að Everton hafi verið hissa á Balogun þegar hann ákvað að skrifa ekki undir.
Eigendur Everton finna fyrir reiði stuðningsmanna
TENGT EFNI

Eigendur Everton finna fyrir reiði stuðningsmanna

Það kemur fram að eftir að félögin náðu saman sín á milli þá hafi Everton græjað flug fyrir leikmanninn til Englands. Balogun óskaði eftir seinkun á flugi og því kom hann seinna um daginn og læknisskoðunin fór því fram seinna en áætlað var.

Einhver meiðsli komu upp í læknisskoðuninni en Mónakó stóð fast á því að hann væri leikfær og myndi spila um næstu helgi ef hann færi ekki. Þrátt fyrir það fóru félögin aftur að samningaborðinu og upphæðin sem Everton átti að greiða Mónakó var lækkuð. Með því minnkaði áhættan sem Everton var að taka.

Félagið reyndi einnig að fá inn Joshua Zirkzee frá Manchester United til að fá inn tvo framherja, en United kom í veg fyrir þau skipti. Á þeim tímapunkti var búið að segja já við því að Beto færi til Fiorentina og ekki hægt var að hætta við það.

Félögin samþykktu breytta skilmála er vörðuðu skiptin á Balogun en engin breyting var á samkomulagi Balogun og Everton. Eftir að félögin náðu aftur saman ákvað Balogun hins vegar að skrifa ekki undir og hélt aftur til Mónakó.

Það kom Everton á óvart að heyra að Balogun hafi ekki liðið eins og Everton vildi hann nægilega mikið, vegna þess að á engum tímapunkti breyttist samkomulag Everton við leikmanninn. Everton vildi mjög mikið fá Balogun til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.