02.10.15 - 20:35
Arnar Geir Halldórsson
Jón Stefán tekur við KF (Staðfest)

Jón Stefán (til hægri) færir sig frá Dalvík til Fjallabyggðar

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Jón Stefán Jónsson, fyrrum þjálfari Dalvíkur/Reynis, undirritaði í kvöld þriggja ára samning við 2.deildarlið KF.
Jón Stefán tók við erkifjendum KF, Dalvík/Reyni eftir fyrri umferðina í 2. deildinni í sumar. Dalvík/Reynir var þá á botni deildarinnar og það varð einnig niðurstaðan í lok tímabils sem þýðir að liðið spilar í 3. deild að ári.
Jón Stefán hefur einnig þjálfað yngri flokka Þórs til margra ára auk þess að stýra kvennaliði Hauka og karlaliði Tindastóls um tíma.
„Ég er mjög ánægður að fá tækifæri til að halda áfram því góða starfi sem hefur verið unnið innan KF undanfarin ár. Leikmannahópurinn er ungur og spennandi. Ætlunin er að mynda frábæra umgjörð um liðið. Sennilega eina af þeim bestu i 2.deild og það er auðvitað spennandi að taka þátt i svoleiðis vinnu,\" sagði Jón Stefán við undirskriftina.
KF endaði í 7.sæti 2.deildar á síðasta tímabili en Jón Aðalsteinn Kristjánsson stýrði liðinu og hætti eftir tímabilið.

Heimild: Heimasíða KF