02.10.15 - 17:42
Elvar Geir Magnússon
Milos skrifar undir hjá Víkingi til tveggja ára (Staðfest)

Milos Milojevic.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Knattspyrnudeild Víkings og Milos Milojevic hafa framlengt samning um þjálfun meistaraflokks Víkings. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Víkingum.
Milos verður því þjálfari Víkings næstu tvö árin. Helgi Sigurðsson, fyrrum leikmaður félagsins, hefur einnig verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari.
„Undir stjórn Milosar og Helga í sumar tryggði félagið áframhaldandi veru sína í úrvaldsdeild á næsta ári og mun Víkingur því leika í Pepsi-deildinni þriðja árið í röð,\" segir í tilkynningunni.
„Stjórn Knattspyrnudeildar Víkings lýsir yfir ánægju með að Milos og Helgi verði áfram með liðið og óskar þeim velfarnaðar á næsta keppnistímabili.\"
Víkingur er í 9. sæti Pepsi-deildarinnar en takist liðinu að vinna KR í lokaumferðinni á morgun á það möguleika að ná mest 7. sæti.
Milos var þjálfari liðsins með Ólafi Þórðarsyni en Ólafur var látinn taka pokann sinn í sumar.