02.10.21 - 19:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jón Steindór og Rakel taka við Fylki (Staðfest)

Mynd: Íþróttafélagið Fylkir/Facebook

Mynd: Íþróttafélagið Fylkir/Facebook

Jón Steindór Þorsteinsson og Rakel Logadóttir mun stýra Fylki í 1. deild kvenna á næstu leiktíð. Þau skrifuðu undir tveggja ára samning við félagið í dag en þetta kemur fram á Facebook síðu félagsins.
Fylkir féll úr Pepsi Max deildinni í sumar en Kjartan Stefánsson hætti með liðið í sumar.
Jón Steindór kom inní þjálfarateymi félagsins á miðju sumri en Rakel Logadóttir var gríðarlega öflugur leikmaður en hún á að baki hátt í 300 meistaraflokksleiki og 26 A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
Tilkynning Fylkis:
Jón Steindór og Rakel taka við meistaraflokki kvenna.
Knattspyrnudeild Fylkis hefur samið við þau Jón Steindór Þorsteinsson og Rakel Logadóttur um að taka við þjálfun meistaraflokks kvenna hjá félaginu.
Samningur þeirra er til tveggja ára og eru miklar vonir bundar við samstarfið.
Jón Steindór er öllum Fylkismönnum kunnur en hann hefur þjálfað hjá félaginu í mörg ár. Jón kom inn í þjálfarateymið á miðju sumri og var mikil ánægja með hans störf.
Rakel Logadóttir ætti að vera öllum knattspyrnuáhugamönnum góðkunn enda á ferðinni einn reynslumesti leikmaður Íslands með hátt í 300 leiki í meistaraflokki og á hún 70 leiki fyrir landsliðið, þar af 26 fyrir A landsliðið.
Knattspyrnudeild Fylkis fagnar þessari góðu ráðningu og vonast eftir farsælu samstarfi næstu árin.