Viktor Bjarki Arnarsson hefur verið ráðinn sem nýr yfirþjálfari hjá Víkingi Reykjavík. Hann mun hefja störf í byrjun þessa mánaðar.
Viktor Bjarki er velkunnugur Víkingum enda spilaði hann upp yngri flokka félagsins áður en að hann var keyptur til Utrecht í Hollandi aðeins 16 ára gamall.
Viktor kom til baka til Víkings árið 2004 og spilaði í Landsbankadeildinni með ungu liði félagsins sem innihélt meðal annars Kára Árnason og Sölva Geir Ottesen. Viktor spilaði svo aftur í Víkingstreyjunni sumarið 2006 og var valinn leikmaður ársins í efstu deild. Í kjölfarið var hann seldur í atvinnumennsku til Lilleström í Noregi, í annað sinn frá Víking. Viktor kom svo aftur til félagsins 2015 og lék með liðinu í þrjú tímabil í efstu deild.
Viktor spilaði alls 210 leiki í efstu deild karla, 75 af þeim fyrir Víkingsliðið og lék 30 leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Viktor lauk leikmannaferli sínum sem spilandi aðstoðarþjálfari hjá HK og gerðist í kjölfarið aðstoðarþjálfari karlaliðs þeirra og afreksþjálfari. Síðastliðin tvö ár hefur Viktor starfað sem yfirþjálfari hjá KR en hann hefur lokið KSÍ þjálfaragráðu A.
„Við bjóðum Viktor innilega velkominn heim til Víkings og hlökkum til samstarfsins," segir í tilkynningu Víkings.
Athugasemdir