02.10.26 - 08:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gyökeres: Maður býst við meiri spiltíma


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Viktor Gyökeres gekk til liðs við Arsenal frá Sporting síðasta sumar. Hann hefur ekki náð að sýna sitt rétta andlit en hann hefur skorað 21 mark í 60 leikjum. Hann hefur aðeins komið við sögu í tveimur leikjum í deildinni á þessu tímabili.
Hann var orðaður í burtu frá félaginu í sumar en hann ætlaði alltaf að vera áfram í Lundúnum.
Hann var orðaður í burtu frá félaginu í sumar en hann ætlaði alltaf að vera áfram í Lundúnum.
„Það var mikið um sögusagnir. En ég náði heilu undirbúningstímabili og það leit vel út. Ég var með fulla einbeitingu á Arsenal. Fyrir mér var það eina í stöðunni að vera áfram. Ég er mjög ánægður hjá félaginu," sagði Gyökeres.
„Auðvitað býst maður við meiri spiltíma en við erum með gríðarlega sterkan hóp með fullt af góðum leikmönnum og höfum spilað vel í upphafi tímabilsins."
„Auðvitað býst maður við meiri spiltíma en við erum með gríðarlega sterkan hóp með fullt af góðum leikmönnum og höfum spilað vel í upphafi tímabilsins."
