Fotbolti.net
02.10.26 - 10:00
Kári Snorrason

Birnir stofnar eigið fatamerki - „Gott að hafa eitthvað sem slekkur aðeins á fótboltahausnum“

Hefur stofnað fatamerkið BE STUDIOS.

Hefur stofnað fatamerkið BE STUDIOS.

Canon

Mynd: Stjarnan

Birnir Snær Ingason, leikmaður Stjörnunnar, hefur látið til sín taka utan vallarins og stofnað sitt eigið fatamerki, BE STUDIO.

Birnir, sem er 29 ára, hefur stundað nám í fatahönnun við Listaháskóla Íslands undanfarin ár og hefur hugmyndin að eigin fatamerki verið lengi í kollinum á honum.

Fótbolti.net ræddi við Birni um fatamerkið, námið og hvernig gengur að samræma fatahönnunina og fótboltann.
„Mig hefur lengi langað til að stofna mitt eigið fatamerki og ég hef verið að hanna föt í langan tíma, en BE STUDIO er í raun fyrsta skiptið sem ég fer alla leið með þetta,“ segir Birnir sem var spurður út í nafnið á merkinu.

„Það kemur í rauninni frá stafnum B á ensku, þar sem ég heiti Birnir. Ég vildi hafa nafnið stutt og einfalt og það sem mér finnst skemmtilegt við „BE“ er að það hefur meira en eina merkingu. Það þýðir „að vera“ á ensku en hljómar líka eins og stafurinn B.“

Hönnunarvörur á sanngjörnu verði
Birnir segist hafa haft endalausan áhuga á fötum og tísku síðan hann var í grunnskóla en síðustu misseri hefur hann farið meira í smáatriðin.

„Mjög stór partur af því sem mér finnst skemmtilegast við hönnunina er að fara dýpra í smáatriðin — snið, efni, smellur, rennilása og alls konar hluti sem maður tekur kannski ekki alltaf eftir við fyrstu sýn.

Markmiðið mitt með BE STUDIO er að bjóða upp á hönnunarvörur á sanngjörnu verði. Mig langar að fólk sjái eitthvað nýtt í flíkunum og finni að það hafi verið lagður tími og hugsun í hönnunina og smáatriðin,“
segir Birnir.

Fyrsta línan frá merkinu kemur út í byrjun október og er hægt að skrá sig á póstlista inn á bestudio.is fyrir 10% afslátt af fyrstu pöntun.

Smelltu hér til að fara á vefsíðu BE STUDIO

Gott að slökkva stundum á fótboltahausnum
Birnir hóf nám við fatahönnun í LHÍ fyrir fjórum árum. Hann þurfti að taka sér pásu frá náminu þegar hann hélt út til Halmstads í Svíþjóð en byrjaði aftur er hann sneri heim.

Hann segir hafa gengið vel að ná að samtvinna náminu og fótboltanum. „Fótboltinn er alltaf í fyrsta sæti þegar kemur að æfingum og leikjum, en svo fer stór hluti af frítímanum mínum í BE STUDIO. Mér finnst líka mjög gott að hafa eitthvað utan fótboltans sem ég hef svona mikinn áhuga á.

Gott að hafa eitthvað annað til að hugsa um til þess að slökkva aðeins á fótboltahausnum því hann getur tekið mjög mikið á. Þetta er allt öðruvísi heimur og ég fæ mikið út úr því að geta verið skapandi og byggt eitthvað upp frá grunni,“
segir Birnir.

Að lokum var Birnir spurður hvort að það væri einhver leikmaður í Bestu deildinni sem væri með hvað lélegasta tískuvitið.

„Það er eiginlega enginn einn sem poppar strax upp í hugann. Allir eru með sinn eigin stíl og það ber auðvitað að virða það. En það eru alveg nokkrir sem ég væri til í að sjá í BE STUDIO áður en ég færi að gefa þeim einhverja tískutitla,“ sagði Birnir léttur að lokum.
Stundar nám í fatahönnun við LHÍ.

Stundar nám í fatahönnun við LHÍ.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Vel klæddur á vellinum.

Vel klæddur á vellinum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrsta lína BE STUDIOS kemur út núna í byrjun október.

Fyrsta lína BE STUDIOS kemur út núna í byrjun október.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur lengi haft brennandi áhuga á tísku.

Hefur lengi haft brennandi áhuga á tísku.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.