Fotbolti.net
02.10.26 - 13:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Hann er alltof góður fyrir Southampton"

„Hann er alltof góður fyrir Southampton"
Canon

Mynd: Southampton

Arsenal goðsögnin David Seaman vonast til að Aaron Ramsdale muni færa sig um set í janúar.

Ramsdale er á mála hjá Southampton en er fjórði í goggunnarröðinni í markmannsstöðunni.
Ramsdale var á mála hjá Arsenal frá 2021-2024 en gekk síðan til liðs við Southampton og var á láni hjá Newcastle á síðustu leiktíð. Newcastle ákvað ekki að nýta kaupmöguleika.

„Það hefði auðvitað verið betra. Ég veit að hann fékk nokkur tilboð í sumar. Nú er það bara að bíða eftir janúarglugganum og sjáum til hvað gerist," sagði Seaman.

„Hann er of góður markvörður til að vera hjá Southampton. Við vitum það öll. Hann er enn mjög góður markvörður. Ég er viss um að það muni eitthvað gerast í janúar."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.