Fotbolti.net
22.11.26 - 17:32
Ívan Guðjón Baldursson

Jakirovic: Tzolakis bjargaði okkur

Jakirovic: Tzolakis bjargaði okkur
Canon

Mynd: EPA

Sergej Jakirovic þjálfari Hull City var himinlifandi eftir frábæran sigur á Brighton í ensku úrvalsdeildinni í dag.
England: Tzolakis í essinu sínu í dramatískum sigri á Brighton
TENGT EFNI

England: Tzolakis í essinu sínu í dramatískum sigri á Brighton

Nýliðarnir voru án sigurs í síðan í lok ágúst og eru stigin þrjú kærkomin. Hull er núna með 14 stig eftir 11 umferðir.

„Við spiluðum vel gegn frábærum andstæðingum. Brighton er virkilega sterkt lið og við rétt svo lifðum þennan fyrri hálfleik af þökk sé Konstantinos Tzolakis sem bjargaði okkur trekk í trekk," sagði Jakirovic að leikslokum.

„Við nýttum svo rauða spjaldið til þess að eiga góðar skyndisóknir og Oli McBurnie gerði vel að setja tvennu til að tryggja dýrmæt stig, hann er alvöru markaskorari og svo mikilvægur fyrir okkur. Við erum mjög ánægðir út af því að við höfum verið að bíða í þrjá mánuði eftir þessum sigri sem er ótrúlegt, en ég hef aldrei áður verið í úrvalsdeildinni.

„Tzolakis var gjörsamlega ótrúlegur, sérstaklega eftir erfitt landsleikjahlé."


Tzolakis varði mark Grikklands í 7-0 tapi gegn Hollandi í landsleikjahlénu og var svo á bekknum í 1-0 sigri gegn Serbíu.
Jakirovic: Tzolakis bjargaði okkur
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Bournemouth11+418
5Liverpool10+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd10-58
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.