Fotbolti.net
02.11.15 - 16:42
Magnús Már Einarsson

Hörður Árna áfram hjá Stjörnunni (Staðfest)

Hörður Árna áfram hjá Stjörnunni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vinstri bakvörðurinn Hörður Árnason hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Stjörnuna.
Hörður hafði verið að skoða möguleika á að flytja til útlanda en nú er ljóst að hann verður áfram með Stjörnumönnum næstu árin.

„Frábærar fréttir: Hörður Árnason hefur skrifað undir þriggja ára samning við Stjörnuna,\" segir Stjarnan á Twitter.

Hörður byrjaði ekki að æfa fótbolta af krafti fyrr en hann varð 15 ára gamall.

Eftir að hafa byrjað meistaraflokksferil sinn hjá uppeldisfélaginu HK þá fór Hörður yfir í Stjörnuna áður 2011. Hinn 26 ára gamli Hörður hefur verið fastamaður í liði Stjörnunnar síðan þá.

Sjá einnig:
Byrjaði að æfa fótbolta 15 ára (Viðtal í ágúst 2014)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.