02.11.15 - 16:53
Magnús Már Einarsson
Remi Garde tekinn við Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Remi Garde hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Aston Villa en hann tekur við af Tim Sherwood sem var rekinn á dögunum.
Garde þjálfaði Lyon við góðan orðstír frá 2011 þar til í fyrra. Hann skrifaði undir samnning við Aston Villa sem gildir til sumarsins 2019.
Hinn 49 ára gamli Garde þekkir til á Englandi en hann spilaði með Arsenal frá 1996 til 1999.

„Það er ótrúlegur heiður að vera ráðinn stjóri hjá svona þekktu félagi,\" sagði Garde.
Aston Villa heimsækir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en Garde mun líklega fylgjast með þeim leik úr stúkunni.