Fotbolti.net
02.11.21 - 12:03
Elvar Geir Magnússon

Conte nýr stjóri Tottenham (Staðfest)

Antonio Conte.

Antonio Conte.

Canon

Mynd: EPA

Antonio Conte hefur skrifað undir samning við Tottenham en enska félagið hefur staðfest þetta. Samningurinn er til 2023, með möguleika á framlengingu.

Hann tekur við af Nuno Espirito Santo sem var rekinn á mánudag eftir fjóra mánuði og sautján leiki við stjórnvölinn.

Conte var í viðræðum við Tottenham í sumar en þær voru langt komnar þegar þær sigldu í strand.
Conte er venjulega ekki hrifinn af því að taka starf á miðju tímabili en lét vita af því að hann myndi gera undantekningu fyrir Manchester United ef Ole Gunnar Solskjær yrði rekinn. Tottenham bað hann um að skoða það að gera slíkt hið sama fyrir sig.

Conte hefur sett ákveðnar kröfur fyrir næsta félagaskiptaglugga en hann hyggst endurbyggja lið sem hefur tapað fimm leikjum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Conte setur kröfu á að ráða ferðinni í leikmannakaupum.

Conte hefur unnið deildartitla með Juventus, Chelsea og Internazionale en hann yfirgaf Inter í maí þar sem félagið þurfti að selja leikmenn vegna fjárhagsvandamála. Vera Conte hjá Juventus var sú eina sem entist í meira en tvö ár.

Nuno var rekinn eftir 3-0 tap gegn Manchester United á laugardaginn. Stuðningsmenn létu óánægju sína í ljós en Nuno hafði verið ráðinn eftir að ýmsir stjórar höfnuðu félaginu síðasta sumar. Þar á meðal Conte, Paulo Fonseca og Gennaro Gattuso.

Tottenham hefur farið í gegnum tvær klukkustundir og sextán mínútur í ensku úrvalsdeildinni án þess að eiga skot á rammann. Leikstíllinn undir Nuno ásamt versnandi gengi eru ástæðan fyrir því að hann var látinn taka pokann sinn.

Tottenham er í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar og í þriðja sæti í riðli sínum í Sambandsdeildinni. Liðið er komið í 8-liða úrslit enska deildabikarsins.

Conte er fyrrum stjóri Chelsea.

Conte er fyrrum stjóri Chelsea.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.