02.11.21 - 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tómas Leó til liðs við Grindavík (Staðfest)

Tómas Leó hefur raðað inn mörkunum með Haukum síðustu tvö tímabil.

Mynd: Hulda Margrét

Grindavík hefur gengið frá samningi við sóknarmanninn Tómas Leó Ásgeirsson.
Hann kemur frá Haukum þar sem hann hefur spilað frábærlega undanfarin tvö ár. Hann hefur skorað 27 mörk í 40 deildarleikjum fyrir Hauka í 2. deildinni. Hann er uppalinn hjá Sindra á Höfn í Hornafirði.
Tómas Leó, sem er fæddur árið 1998, mun næsta sumar spreyta sig í deild ofar, í Lengjudeildinni.
„Ég er mjög ánægður með að ganga til liðs við Grindavík. Þetta er metnaðarfullur klúbbur sem hefur reynslu af því að vera í fremstu röð. Ég er mjög hrifinn af þeim hugmyndum sem þjálfarateymið hafði fram að færa til framtíðar hjá Grindavík og þeim metnaði sem er til staðar hjá klúbbnum. Ég tel þetta vera gott skref á mínum ferli að ganga til liðs við Grindavík,“ segir Tómas Leó eftir að hafa skrifað undir samning við Grindavík.
„Tómas er ungur og spennandi leikmaður sem við höfum fylgst með í nokkurn tíma. Ég tel að hann muni styrkja okkar lið í fremstu víglínu og að hann geti þróað áfram sinn leik hjá félaginu. Ég hlakka til að byrja að vinna með Tómasi og tel að hann muni falla mjög vel inn í okkar leikmannahóp,“ segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Grindavíkur.
Hjá Grindavík kemur hann til með að fylla skarð Sigurðs Bjarts Hallssonar sem gekk nýverið í raðir KR.