Fotbolti.net
02.12.15 - 13:50
Magnús Már Einarsson

Brynjar Jónasson í Þrótt (Staðfest)

Frá undirskriftinni.

Frá undirskriftinni.

Canon

Mynd: Þróttur

Þróttur hefur fengið framherjann Brynjar Jónasson til liðs við sig frá Fjarðabyggð.

Hinn 21 árs gamli Brynjar er uppalinn hjá FH en í fyrra var hann bestur, efnilegastur og markahæstur í 2. deild þegar Fjarðabyggð sigraði deildina.

Í sumar skoraði hann síðan níu mörk í fyrstu deildinni með Fjarðabyggð. Þar spilaði hann undir stjórn Brynjars Gestssonar sem er nú aðstoðarþjálfari Þróttar.

„Ég er mjög ánægður með að vera nú leikmaður Þróttar, Ég hlakka til þess að vinna með öllu fólkinu í Þrótti og sérstaklega tveim frábærum þjálfurum sem hafa sýnt mikla trú á mér og gerðu valið um að ganga í raðir Þróttar auðvelt. Ég tel að Þróttur geti gert mig að betri leikmanni og hjálpi mér að stíga það skref að verða topp leikmaður,\" sagði Brynjar.
Brynjar er annar framherjinn sem Þróttur fær í vetur en Emil Atlason kom til félagsins á dögunum. Viktor Jónsson, markahæsti maður Þróttar, er hins vegar farinn aftur í Víking eftir að hafa verið á láni.

Við sama tilefni skrifuðu tveir efnilegir leikmenn undir þriggja ára samning við Þrótt, en það eru þeir Aron Dagur Heiðarsson og Júlíus Óskar Ólafsson.
Brynjar í leik með Fjarðabyggð.

Brynjar í leik með Fjarðabyggð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.