Fotbolti.net
02.12.15 - 21:24
Arnar Geir Halldórsson

Patrick Pedersen til Viking (Staðfest)

Patrick Pedersen við undirskriftina í Noregi í kvöld

Patrick Pedersen við undirskriftina í Noregi í kvöld

Canon

Mynd: Viking Stavanger

Danski sóknarmaðurinn Patrick Pedersen hefur skrifað undir þriggja ára samning við norska úrvalsdeildarliðið Viking frá Stavanger.
Pedersen var markahæsti leikmaður Pepsi deildarinnar á síðustu leiktíð og hjálpaði Val að vinna bikarmeistaratitilinn.

„Patrick er góður drengur og öflugur knattspyrnumaður. Við erum ánægðir að hafa náð samningum við hann og væntum mikils af honum á næstu leiktíð. Við bjóðum Patrick hjartanlega velkominn til Viking,\" sagði Eirik Henningsen, yfirmaður leikmannamála hjá norska liðinu við undirskriftina.

Viking endaði í 5.sæti norsku úrvalsdeildarinnar á nýafstaðinni leiktíð.

Pedersen er ætlað að fylla skarð íslenska landsliðsframherjans Jóns Daða Böðvarssonar sem yfirgefur Viking og gengur til liðs við þýska B-deildarliðið Kaiserslautern um áramótin.

Hjá Viking mun Pedersen engu að síður hitta fyrir tvo Íslendinga, þá Björn Daníel Sverrisson og Steinþór Frey Þorsteinsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.