Fotbolti.net
02.12.19 - 07:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Marco Silva: Mjög erfitt að kyngja þessu

Leikmenn Leicester fagna sigurmarkinu, Marco Silva svekktur á hliðarlínunni.

Leikmenn Leicester fagna sigurmarkinu, Marco Silva svekktur á hliðarlínunni.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er alveg óhætt að segja að pressan á Marco Silva stjóra Everton er orðin mjög mikil, hann gæti þess vegna orðið atvinnulaus í dag miðað við gengi síðustu vikna.
Everton tapaði í gær gegn Leicester City eftir að hafa verið með forystuna lengi vel í leiknum. Sigurmark Leicester kom í uppbótartíma.

„Það er mjög erfitt að kyngja þessu, við áttum þetta alls ekki skilið. Við áttum skilið að fá eitthvað út úr þessum leik."

„Það er ekkert hægt að setja út á baráttuna og viljann, við vorum að spila gegn liði sem er með mikið sjálfstraust. Af öllum leikjum þeirra á heimavelli á tímabilinu gæti ég trúað að þessi hafi verið sá erfiðasti," sagði Silva sem efast ekki um að hann hafi enn fullt traust leikmanna.

„Ég efast ekki um að ég sé með fullt traust allra leikmanna. Það getur enginn gagnrýnt viðhorf þeirra, þeir hafa verið að leggja meira á sig og gert vel."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.