Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 02. desember 2020 20:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fred mjög heppinn - „Ævintýralega heimskulegt að bjóða upp á þetta"
Mynd: Getty Images
„Fred slapp vel þarna, ég veit ekki hversu oft við höfum séð rautt spjald fyrir svona," sagði Reynir Leósson í Meistaradeildarmessunni á Stöð 2 Sport.

Reynir sagði þetta eftir að Fred fór með höfuðið í Leandro Paredes, leikmann PSG, í leik United og PSG í Meistaradeildinni. Paredes féll til jarðar og greip um andlitið. Fred uppskar gula spjaldið eftir að dómari leiksins skoðað í VAR hvort Fred hefði átt að fá rautt.

„Ég er sammála, hann sleppur mjög vel. Það er alveg ævintýralega heimskulegt að bjóða upp á þetta," sagði Atli Viðar Björnsson.

Smelltu hér til að sjá atvikið

Staðan í leiknum er 1-1. Marcus Rashford og Neymar skoruðu mörkin.



Athugasemdir
banner
banner