Fotbolti.net
26.09.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Ísland í dag - Mætum Eistum á Laugardalsvelli

Blikar þurfa sigur í Eyjum

Ísland í dag - Mætum Eistum á Laugardalsvelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er skemmtilegur fótboltadagur framundan í dag þar sem íslenska karlalandsliðið tekur á móti Eistlandi í C-deild Þjóðadeildarinnar.
Búist er við sigri gegn Eistlandi sem situr í 129. sæti heimslista FIFA, á meðan Ísland er í 74. sæti.

Á sama tíma eigast Búlgaría og Lúxemborg við í hinum leik íslenska riðilsins í Þjóðadeildinni.

Leikirnir hefjast klukkan 16:00 en fyrr í dag er einn leikur á dagskrá í efri hluta Bestu deildar kvenna.

Þar tekur ÍBV á móti Íslandsmeisturum Breiðabliks og þurfa Blikar á sigri að halda í titilbaráttunni. Eyjakonur sitja í þriðja sæti en eru tíu stigum frá toppbaráttunni þegar fjórar umferðir eru eftir.

Besta kvenna - Efri hluti
14:00 ÍBV-Breiðablik (Hásteinsvöllur)

Þjóðadeild karla - C-deild, riðill 4
16:00 Ísland-Eistland (Laugardalsvöllur)
16:00 Búlgaría-Lúxemborg (Hristo Botev Stadium)
Ísland í dag - Mætum Eistum á Laugardalsvelli
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik19+2840
2FH19+2540
3ÍBV19-230
4Stjarnan19+326
5Þróttur R.19-423
6Grindavík/Njarðvík19-1122
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.