Erling Braut Haaland er ekki í leikmannahópi Dortmund í kvöld. Liðið mætir Lazio í Meistaradeildinni.
Haaland er með rifinn lærvöðva og mun ekki leika með þýska félaginu út þetta ár.
Haaland er með rifinn lærvöðva og mun ekki leika með þýska félaginu út þetta ár.
Hann mun snúa til baka í lið Dortmund eftir vetrarfrí í Þýskalandi. Ljóst er að þetta er mikil blóðtaka fyrir Dortmund sem er í toppbarátunni í Þýskalandi.
Norski framherjinn hefur skorað sex mörk í Meistaradeildinni og tíu mörk í Bundesliga. Dortmund er á toppnum í riðli F og þarf eitt stig úr síðustu tveimur leikjunum til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar.
Byrjunarlið Dortmund:
Bürki; Piszczek, Akanji, Hummels, Guerreiro; Delaney, Bellingham; Hazard, Reyna, Morey; Reus.
Byrjunarlið Lazio:
Reina; Hoedt, Acerbi, Patric; Marusic, Milinkovic-Savic, Lucas Leiva, Luis Alberto, Fares; Correa, Immobile.
Athugasemdir