Fotbolti.net
03.01.14 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Merkel og Bellerin lánaðir til Watford (Staðfest)

Giuseppe Sannino hefur stýrt Palermo tvisvar á síðustu tveimur árum, sem er bara eðlilegt þar á bæ.

Giuseppe Sannino hefur stýrt Palermo tvisvar á síðustu tveimur árum, sem er bara eðlilegt þar á bæ.

Canon

Mynd: Getty Images

Watford er ekkert að spara sig á leikmannamarkaðinum í janúar í tilraun sinni til að komast upp í ensku Úrvalsdeildina.

Eftir gott gengi á síðasta tímabili undir stjórn Gianfranco Zola var búist við toppbaráttu aftur á núverandi tímabili. Eftir slæmt gengi sagði Zola af sér og var samlandi hans, Giuseppe Sannino, ráðinn í staðinn.
Watford er í eigu sömu aðila og eiga Udinese og Granada sem hafa verið að gera þokkalega hluti í efstu deildum á Ítalíu og Spáni.

Félagið hefur verið gríðarlega duglegt við að fá leikmenn til sín, hvort sem það er á lánssamningum eða ekki og er janúarglugginn að engu leyti frábrugðinn, enda er félagið þegar búið að fá nokkuð stóra bita til sín.

Liðið er með 30 stig um miðja Championship deild og á enn góðan séns á að enda í umspilssæti með góðu gengi á síðari hluta tímabils.

Þjóðverjinn ungi Alexander Merkel er kominn á lánssamning frá Udinese en fyrir það var hann leikmaður AC Milan og Genoa og á yfir 25 efstudeildarleiki á Ítalíu að baki. Varnarmaðurinn Hector Bellerin er þá kominn á lánssamning frá Arsenal og Mathias Ranegie er einnig á leið til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.