03.01.16 - 12:05
Arnar Geir Halldórsson
Crystal Palace kaupir leikmann úr utandeildinni (Staðfest)

Pardew leitar að næsta Vardy

Mynd: Getty Images

Pardew leitar að næsta Vardy

Mynd: Getty Images
Hinn 19 ára gamli Randell Williams hefur gert samning við enska úrvalsdeildarfélagið Crystal Palace.
Williams hefur hingað til leikið Tower Hamlets í ensku neðri deildunum en liðið keppir í deild sem er svæðisskipt og er hluti af 9.deild enska boltans.
Williams gerir samning út leiktíðina við Crystal Palace með möguleika á framlengingu.
„Alan Pardew sagðist vilja skoða mig og sjá hvernig ég myndi standa mig á æfingum með aðalliðinu. Svo spilaði ég æfingaleik og honum líkaði vel við það sem hann sá.\"
„Að fara upp um níu deildir er risastórt skref en ég vil bara bæta mig og vonandi munu leikmenn og félagið hjálpa mér í því,\" sagði Williams við undirskriftina.
Ensk stórlið eru í auknum mæli farin að að líta á neðri deildirnar í leit að liðsstyrk en það hefur gefist mörgum vel á undanförnum árum.
Frægustu dæmin um leikmenn sem hafa slegið í gegn í úrvalsdeildinni eftir að hafa spilað í utandeildinni eru Chris Smalling, lykilmaður Man Utd og Jamie Vardy, leikmaður Leicester sem er einmitt markahæsti leikmaður deildarinnar eins og er.