03.01.16 - 20:50
Arnar Daði Arnarsson
Þórdís Hrönn í Stjörnuna (Staðfest)

Þórdís Hrönn er gengin í raðir Stjörnunnar.

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Anna María framlengdi við Stjörnuna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalið Stjörnunnar hefur fengið Þórdísi Hrönn Sigfúsdóttur í sínar raðir og skrifaði hún undir þriggja ára samning við Garðabæjarfélagið.
Þórdís Hrönn kemur til Stjörnunnar frá sænska liðinu Älta IF, en hún hafði áður leikið allan sinn meistaraflokks feril með Breiðabliki og skorað 13 mörk í 66 leikjum í deild og bikar.
Hún gekk í raðir Älta í mars 2014 og skoraði 19 mörk í 30 leikjum á sínu fyrsta tímabili í sænsku 1. deildinni. Endaði hún sem markahæsti leikmaður liðsins.

Í kjölfarið gerði Þórdís Hrönn, sem er 22 ára gömul, nýjan samning við Älta og spilaði annað tímabil í Svíþjóð. Þar varð hún aftur markahæst í liðinu og skoraði níu deildarmörk í 24 leikjum.
Nú ætlar hún hins vegar að snúa aftur til Íslands og spila fyrir Stjörnuna, en hún hefur æft með liðinu undanfarin ár þegar hún hefur verið á landinu. Hún á að baki 29 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim sjö mörk.
Þá framlengdi varnarmaðurinn Anna María Baldursdóttir jafnframt samning sinn við Stjörnuna til þriggja ára, en hún er 21 árs gömul og á þrátt fyrir ungan aldur að baki 99 leiki í deild og bikar fyrir félagið.
Hún á að baki sjö A-landsleiki og 29 leiki fyrir yngri landslið Íslands.