Fotbolti.net
03.01.17 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Natasha ólétt - Ekki með ÍBV í sumar

Natasha (til vinstri) i leik með ÍBV síðastliðið sumar.

Natasha (til vinstri) i leik með ÍBV síðastliðið sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Kvennaboltinn
Natasha Anasi, varnarmaður ÍBV, er ólétt en hún á von á barni í júní. Natasha verður því ekki með ÍBV í Pepsi-deildinni á komandi tímabili.
Hin bandaríska Natasha hefur verið í stóru hlutverki í vörn ÍBV undanfarin þrjú tímabil.

Síðastliðið sumar var hún valin í úrvalslið tímabilsins hjá Fótbolta.net.

„Hún var ein af bestu leikmönnum deildarinnar í fyrra og var frábær fyrir okkur. Það er voðalega lítið sem ég get gert í þessu. Hennar verður sárt saknað en við finnum annan leikmann í staðinn,\" sagði Ian Jeffs, þjálfari ÍBV, í samtali við Fótbolta.net í dag.

Adrienne Jordan, Kristín Erna Sigurlásdóttir, Adelaine Gay og Katie Kraeutner hafa gengið til liðs við ÍBV í vetur auk þess sem lykilleikmennirnir Cloe Lacasse, Sóley Guðmundsdóttir, Shaneka Gordon og Sigríður Lára Garðarsdóttir hafa framlengt samninga sína.

Shaneka verður með ÍBV á ný eftir að hafa misst af öllu síðasta tímabili vegna meiðsla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.