Fotbolti.net
03.01.22 - 15:30
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Ikone til Fiorentina (Staðfest)

Ikone til Fiorentina (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Fiorentina hefur tilkynnt um kaup á franska vængmanninum Jonathan Ikone. Þessi 23 ára Frakki hefur skrifað undir fimm og hálfs árs samning.

Hann er keyptur frá Lille á 14 milljónir punda og mun taka við treyju númer ellefu í Flórens.

Hann lék stórt hlutverk í liði Lille sem varð Frakklandsmeistari á síðasta tímabili. Á liðnu ári spilaði hann sinn fyrsta Meistaradeildarleik. Hann á fjóra landsleiki fyrir Frakkland og eitt landsliðsmark.

Fiorentina situr í sjöunda sæti ítölsku A-deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.