Fotbolti.net
03.01.22 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Pepi dýrastur í sögu Augsburg (Staðfest)

Ricardo Pepi.

Ricardo Pepi.

Canon

Mynd: Getty Images

Þýska úrvalsdeildarfélagið Augsburg er búið að ganga frá kaupum á bandaríska framherjanum Ricardo Pepi.
Hann kemur til félagsins frá FC Dallas í Bandaríkjunum fyrir 20 milljónir evra. Er þetta það mesta sem Augsburg hefur nokkurn tímann borgað fyrir leikmann.

Pepi, sem var valinn efnilegastur í MLS-deildinni á nýafstöðu tímabili, skrifar undir fimm og hálfs árs samning við Augsburg. Það er svo möguleiki fyrir félagið að framlengja samninginn um eitt ár til viðbótar.

Pepi er ein af vonarstjörnum Bandaríkjanna og ljóst að Augsburg bindur við hann miklar vonir.

Það er spurning hvað þetta þýðir fyrir Alfreð Finnbogason, sem leikur í sömu stöðu og Pepi. Alfreð, sem hefur spilað með Augsburg frá 2015, hefur verið mikið frá vegna meiðsla síðustu mánuði.
Alfreð Finnbogason er leikmaður Augsburg.

Alfreð Finnbogason er leikmaður Augsburg.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.