Fotbolti.net
03.02.13 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Marteinn Urbancic lánaður í ÍR (Staðfest)

Marteinn Urbancic lánaður í ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Einar Sigurðsson

Íþróttafélag Reykjavíkur hefur fengið til sín Martein Pétur Urbancic frá Haukum, en hann hefur gert lánssamning út sumarið.
Marteinn, sem er 19 ára gamall, er uppalinn í KR, en hann fór yfir á Hlíðarenda í Val fyrir tveimur árum áður en hann var svo lánaður til Hauka.

Eftir lánssamning hans þar ákvað hann að gera vistaskipti sín til frambúðar, en hann hefur leikið fjóra leiki fyrir Haukka á síðustu tveimur árum í fyrstu deildinni.

ÍR hefur nú fengið Martein að láni út sumarið frá Haukum, en hann lék sinn fyrsta leik fyrir félagið í 4-2 tapinu gegn KR í gær.

Marteinn á yngri bróðir sem er að gera það gott, en það er Tómas Urbancic, sem gekk til liðs við Reading á Englandi á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.