Fotbolti.net
03.02.16 - 15:18
Elvar Geir Magnússon

Atli Freyr Ottesen lánaður í Leikni (Staðfest)

Atli Freyr (27) fagnar marki með Stjörnunni.

Atli Freyr (27) fagnar marki með Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kantmaðurinn Atli Freyr Ottesen Pálsson hefur gengið í raðir Leiknis í Breiðholti á lánssamningi frá Stjörnunni.

Atli er fæddur 1995 og á tíu leiki að baki með Stjörnunni í Pepsi-deildinni en í fyrra var hann lánaður í Gróttu sem féll úr 1. deildinni. Hann skoraði eitt mark í átta leikjum fyrir Gróttu.
Leiknismenn féllu úr Pepsi-deildinni í fyrra en það var þeirra fyrsta tímabil í efstu deild.

Atli ætti að vera kominn með leikheimild á morgun þegar Leiknir mætir Fjölni í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins.

Hann er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Leiknis í vetur en áður höfðu Breiðhyltingar fengið Ingvar Ásbjörn Ingvarsson lánaðan frá FH. Kristján Guðmundsson tók við þjálfun liðsins í haust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.