03.02.16 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Rachel til ÍA - Megan framlengir (Staðfest)

Skagastúlkur hafa fengið liðsstyrk frá Bandaríkjunum.

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

ÍA tilkynnti í gærkvöldi að meistaraflokkur kvenna hafi fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi sumar í Pepsi-deildinni.
Varnarmaðurinn Megan Dunnigan, sem gegndi lykilhlutverki með liðinu í 1. deild í fyrra, ákvað að snúa aftur til félagsins og spila í sumar.
Þar að auki samdi ÍA við miðjumanninn Rachel Owens, en þær Megan léku saman í bandaríska háskólaliðinu Stephen F Austin State University. Þar var Rachel fyrirliði.

Báðar koma þær til landsins í mars, en Pepsi-deild kvenna hefur göngu sína í maí. Fyrsti leikur ÍA er gegn FH á heimavelli.