03.02.16 - 12:19
Magnús Már Einarsson
Sandra María til Leverkusen á láni (Staðfest)

Á leið til Þýskalands.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á leið til Þýskalands.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sandra María Jessen, framherji Þórs/KA, hefur gengið til liðs við Bayer Leverkusen á láni.
Sandra María mun leika sinn síðasta leik með Leverkusen gegn Bayern Munchen þann 1. maí áður en hún snýr aftur til Íslands fyrir byrjun Pepsi-deildarinnar.

„Við fórum út til Þýskalands í haust í heimsókn þar sem Sandra María og Lillý Rut (Hlynsdóttir) æfðu með liðinu og ég fékk að fylgjast með,\" sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þórs/KA við Fótbolta.net.
„Við vildum leyfa henni að fara og spila ef það væri hægt. Það voru flækjustig í þessu og þetta tók nokkrar vikur en núna er þetta klárt.\"
Sandra María er tvítug en hún hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil með Þór/KA.
Sandra María skoraði átján mörk í Pepsi-deildinni 2013 og þrettán mörk í fyrra en sumarið 2014 var hún alveg frá vegna meiðsla. Sandra hefur einnig skorað fimm mörk í ellefu leikjum með A-landsliði Íslands.
Leverkusen er í tíunda sæti af tólf liðum í efstu deild í Þýskalandi en liðið er tveimur stigum á undan Werder Bremen sem er í fallsæti.