Fotbolti.net
03.02.20 - 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jón Stefán þjálfar Tindastól með Guðna (Staðfest)

Jón Stefán og Guðni Þór þjálfa Tindastól saman.

Jón Stefán og Guðni Þór þjálfa Tindastól saman.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Jón Stefán Jónsson verður áfram þjálfari kvennaliðs Tindastóls næsta sumar ásamt Guðna Þór Einarssyni. Þetta kemur fram á Feykir.is og staðfestir Jón þetta við Fótbolta.net.
Jón Stefán, eða Jónsi eins og hann er jafnan kallaður, tók við Tindastól haustið 2017 og stýrði þeim upp úr 2. deild á sínu fyrsta ári. Í fyrra var liðið svo spútniklið Inkasso-deildarinnar. Nýliðarnir voru í séns á að komast upp í Pepsi Max-deildina allt til lokamínútna mótsins.

Eftir síðasta tímabil ákvað Jónsi að stíga til hliðar og var greint frá því að samþjálfari hans undanfarin tvö ár, Guðni Þór Einarsson, yrði einn aðalþjálfari.

Nú hefur Jónsa hins vegar snúist hugur og ætlar hann að vera áfram hjá Tindastóli. Hann er einnig íþróttastjóri Þórs á Akureyri.

Um að samtvinna störfin tvö segir hann: „Ábyrgð mín í þjálfarateyminu kallar á minni viðveru en áður enda gott og mikilvægt fyrir Guðna að taka á sig meiri ábyrgð, hann ræður ferðinni að mestu og er svo sannarlega fullfær um það.

„Störfin tvö, hjá Þór og Tindastól, verða ekki vandamál fram á haustið því það starf íþróttastjóra Þórs er enn í þróun og ekki orðið að 100% vinnu enn. Vinnutímar þessara tveggja starfa skarast afar lítið. Og að sjálfsögðu eru báðir aðilar fullkomlega meðvitaðir stöðuna. Öðruvísi hefði ég ekki tekið þetta að mér."


„Ég hef mikinn metnað sem þjálfari og þar sem hlutirnir gengu ekki alveg upp varðandi slíka vinnu á Akureyri eða nágrenni í meistaraflokki í þetta skipti, þá fannst mer rosalega gott að geta verið áfram með í þessu frábæra verkefni sem kvennalið Tindastóls er. Það voru vissulega önnur tilboð á borðinu, en þetta fannst mér henta best fyrir mig og fjölskylduna"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.