Fotbolti.net
03.02.22 - 15:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ashley Cole í teymið hjá Lampard (Staðfest)

Ashley Cole í teymið hjá Lampard (Staðfest)
Canon

Mynd: Everton

Everton staðfesti í dag að félagið hefði ráðið Ashley Cole í þjálfarateymi félagsins. Hann hittir þar fyrir stjórann Frank Lampard en þeir voru liðsfélagar í enska landsliðinu og hjá Chelsea á sínum tíma.

Cole er 41 árs gamall og var í starfi hjá Chelsea áður en Lampard kallaði eftir því að hann yrði ráðinn í teymið hjá sér.
Cole var í teyminu hjá Lampard þegar hann var stjóri Derby og fylgdi honum svo til Chelsea árið 2019 og var þá þjálfari í akademíu félagsins.

Ásamt því að starfa hjá Everton mun Cole halda starfi sínu sem aðstoðarþjálfari U21 árs landsliðs Englands áfram. Þar er hann aðstoðarmaður Lee Carsley.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.