Fotbolti.net
03.02.22 - 20:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bruce tekur við WBA (Staðfest)

Bruce tekur við WBA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Steve Bruce hefur tekið við sem stjóri WBA sem leikur í Championship deildinni á Englandi. Hann gerir 18 mánaða samning við félagið.
Valerian Ismael var rekinn frá WBA á miðvikudaginn en liðið er í 6. sæti deildarinnar. Bruce segir að aðalmarkmiðið sé að koma liðinu upp í úrvalsdeild.

Bruce var síðast stjóri Newcastle en hann var rekinn eftir að nýju eigendurnir tóku við, hann íhugaði að hætta þjálfun eftir það.

„Ég er í skýjunum með að fá tækifæri á því að stýra félagi með þessa sögu. Ég þekki þetta félag mjög vel frá tíma mínum með Newcastle og ég er klár í takast á við áskorunina að bæta félagið,"sagði Bruce.

„Ég hef aðeins eitt markmið og það er að koma WBA í úrvalsdeildina."

Fyrsti leikur Bruce sem stjóri WBA verður gegn Sheffield United á miðvikudaginn.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.